Stjórn Eðlisfræðifélags Íslands er það mikið ánægjuefni að tilkynna að ráðstefna félagsins, Eðlisfræði á Íslandi 2016, verði haldin laugardaginn 19. mars nk. í Háskólanum í Reykjavík, stofu M105. Að þessu sinni verður lögð áhersla á störf eðlisfræðinga í kennslu, nýsköpun, umhverfis- og heilbrigðismálum. Fyrirlesarar verða:
- Hanna Björg Henrysdóttir, Landspítalinn Háskólasjúkrahús
- Kristinn Johnsen, Mentis Cura
- Martin Swift, Vísindasmiðjan
- Guðný Guðmundsdóttir, Menntaskólinn við Hamrahlíð
- Kristján Leósson, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
- Halldór Björnsson, Veðurstofa Íslands
- Kristín Vogfjörð, Veðurstofa Íslands
- Ágústa Loftsdóttir, Orkustofnun
- Kristján Rúnar Kristjánsson, Íslandsbanki
Ráðstefnan hefst klukkan 10:30 og lýkur um kl.16:00. Boðið verður upp á hádegisverð ásamt kaffi um morgun og eftirmiðdag. Félagar þurfa ekki að greiða neitt ráðstefnugjald og veitingar verða í boði EÍ fyrir þá sem skrá sig fyrir 12. mars.
Skráning fer fram hér að neðan. Nánari upplýsingar veita Martin Swift, s: 773 4565, og Sigurður Ingi Erlingsson, s: 617 9515.
Við hlökkum til að sjá ykkur,
Undirbúningshópurinn
- Sigurður I. Erlingsson, Háskólinnn í Reykjavík
- Sveinn Ólafsson, Háskóli Íslands
- Kristján Leósson, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
- Birgir Urbancic Ásgeirsson, Háskóli Íslands og Menntaskólinn í Reykjavík
- Erling Brynjólfsson, Kvikna
- Gunnar Gunnarsson, Orkuveita Reykjavíkur
- Hrafn Guðmundsson, Veðurstofa Íslands