Lokahluti landskeppninnar í eðlisfræði fór fram hlegina 21.-22. mars 2026. Að þessu sinni tóku 177 nemendur frá 10 skólum þátt í forkeppninni sem var haldin 10. febrúar í öllum þeim skólum sem tilkynntu þátttöku. 16 keppendur úr hópi 22ja efstu í forkeppninni þáðu að koma í úrslitakeppni, sem haldin var nú um helgina í HÍ.
Verðlaunaafhendingin fór fram í Tæknigarði í boði HÍ og voru þá bæði keppendur og starfsmenn verðlaunaðir fyrir afburða góða frammistöðu sína. Tvö 5 manna landslið verða valin til að fara í sumar á Evrópuleikana í Svíþjóð og Ólympíuleikana í Kólumbíu. Skólar og nöfn 5 efstu keppendanna í úrslitakeppninni eru:
- Lydur Thor Lýðsson (VÍ)
- Elvar Magnússon (VÍ)
- Daði Logason (MR)
- Guðlaugur Heiðar Davíðsson (VÍ)
- Úlfar Jökull Eyjólfsson (MR)








