Aðalfundur Eðlisfræðifélags Íslands var haldinn í sal Veraldar 22. október 2025. Nokkur ár voru liðin frá síðasta fundi, starfsemi verið með minna sniði allt frá heimsfaraldri og margir stjórnarmanna höfðu setið í stjórn í allnokkurn tíma. Urðu á þessum fundi því nokkur mannaskipti; tvö stjórnarfólks, þau Ágústa Loftsdóttir, formaður, og Sveinn Ólafsson sitja áfram en ný í stjórn eru þau Brynhildur Þorbjarnardóttir, Kristbjörg Anna Þórarinsdóttir, og Unnar Bjarni Arnalds.
Fundurinn hófst hins vegar á því að veita hvatningarverðlaun félagsins en þau hlutu að þessu sinni:
- Aðalsteinn Þorsteinsson,
- Bjartþór Steinn Alexandersson, og
- Katrín Hekla Magnúsdóttir
Að því loknu flutti Friðrik Magnus erindið Segulmetaefni: Fræðileg furðuverk eða framtíð tölvutækni?, formaður félagsins, Ágústa, flutti skýrslu stjórnar, endurskoðaðir reikningar voru lagðir fram og samþykktir, kosið var í stjórn og stöður endurskoðenda, og árgjaldi haldið óbreytt eftir stuttar umræður enda er fjárhagsstaða félagsins góð.
Í umræðum um önnur mál var aðild félagsins að European Physical Society rædd og vísað til nýrrar stjórnar að taka aðildina til umræðu og gaf fundurinn stjórn umboð til að segja félagið úr samtökunum, telji hún það rétt.













